Tuesday, March 16, 2010

Vinsamleg tilmæli :D

Hæhæ

Ég hvet alla eindregið til að fara inná http://karlmennogkrabbamein.is/keppnin/keppandi?cid=2495 og heita á mig.

Takk MAGGI

Monday, February 22, 2010

Áríðandi tilkynning!

Það er mér virkilega sönn ánægja að tilkynna það að ég mun heiðra íslendinga með nærveru minni dagana 1.-8. Mars. Ég verð með viðtals/heimsóknartíma og tek við tímapönntunum á milli 14:00 og 14:15 alla daga fram að heimkomu í símanr 0047194875198.
Með virðingu og vinsemd
Magnús Friðriksson

Friday, January 22, 2010

ég er ekki mikill vídjópóst aðdáandi en.......


Diddi Malli það þarf held ég ekkert að ræða þennann gæja neitt nánar :D

Wednesday, January 6, 2010

ja nú er það kalt.

Ég hef aldrei á minni lífslöngu ævi, verið jafn feginn að hafa hlustað á hana móðir mína. En það var hún sem sannfærði mig um að taka lopapeysuna mína með til noregs. -20°C er einmitt staðurinn til að ganga í lopapeysu.
Það hefur nú eitthvað minnkað vinnan sem ég fæ hérna úti en fróðir menn spá því að þetta muni taka kipp í lok janúars. ég bíð bara og sé. Annars er fátt að frétta héðan, dagarnir eru svotil eins maður vaktar kamínuna og passar að hún haldi kofanum fyrir ofan frostmark og svo situr maður og saknar Didda malla :)
Annars bíð ég bara spenntur eftir að fá pakkann sem mamma var að senda mér en það er einhverskonar "care package" en hann inniheldur allavega ullarsokka það eitt veit ég.
Það stendur svo til að ég fari ásamt einum vini mínum í veiðitúr. Hann ætlar víst að leiða mig í allann sanleikann um að dorga í gegnum ís :D

en allavega
Meira síðar
MAX NORGE